July 26, 2007...1:05 pm

This has been Guiding light

Jump to Comments

Jæja, eftir nokkrar misheppnaðar blogg tilraunir þá hef ég ákveðið að prufa þetta einu sinni enn. Ég held að galdurinn sé að láta sem fæsta vita og sérstaklega Egill sem getur oft á tíðum verið mjög kaldhæðinn í minn garð og stundum hreinlega bara leiðinlegur þegar hann tekur upp á því að commenta hjá mér. Eins og hann getur nú verið ljúfur.

Eftir mjög vel heppnaða heimsreisu í fyrra þá hef ég ákveðið að fara aftir í eina slíka í lok ágúst. Ég ætla að ferðast á staði sem ég hef aldrei komið til og kíkja einnig á rjómann af stöðunum sem ég fór til í síðustu ferð. Ég fer út 28. ágúst og þá byrja ég að blogga að viti. Fyrsta stopp verður Indónesía þar sem ég fæ að kynnast hvernig er að búa með sápuóperustjörnu, Já konan hans Péturs vinar míns er víst fræg sápuóperudrotting í Jakarta. Þau voru að fjárfesta í villu og í útjaðri Jakarta og hafa boðið mér að vera hjá þeim. Mér hefur alltaf langað til að hafa þernu til að stjana við mig og hvað þá tvær! Persónulega hefði ég látið eina duga en að hafa eina fyrir hverja hæð fyrir sig meikar samt alveg sens… er það ekki?

Leave a Reply